10.04.2007 17:56:29 / Iris

nýtt nýtt :)

Ætla að prufa nýtt blogg...

 

 

http://www.123.is/irishlin

 

 

 

Kerfið þar lítur soldið spennandi út;)

síjú

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 00:56:15 / Iris

Gleðilegt nýtt ár! :)

Búin að hafa það mjög gott yfir jólin. Fékk mér reyndar frí til að fara norður á bretti sem ég hætti svo við þar sem spáin var frekar léleg. Komst svo að því seinna að fjallið var opið en lélegt færi og lítill snjór... Ég ákvað samt að halda fríinu, sem var alveg yfir jól og áramót og dagarnir þar á milli, fyrir utan eina vakt 30. des. Það var mjög notalegt, mikið sofið og bara slappað af:D.

Fékk fullt af gjöfum og bara mjög ánægð með allt, takk fyrir mig:haha:. Ég á samt eftir að fá eina eða tvær í viðbót þar sem Teddi kemur ekki heim fyrr en 4. jan. Búinn að vera í London síðan 20. des. að vinna á björgunarbát, fá sér smá meiri reynslu og skemmta sér.

Við Una erum búnar að taka aldeilis á því í tjúttinu í desember, mikið dansað og mikið fjör. Höfum alveg tekið róleg kvöld inn á milli en það er líka bara fínt. Héldum spilakvöld um daginn, á annan í jólum. Buðum stelpum heim til mín, Silju og tveimur vinkonum Unu, og tókum eitt gott Partý og co. (uppáhalds spilið mitt;)) og kíktum svo í bæinn. Kíkti líka með Helgu Dögg rétt fyrir jól og auðvitað líka mikið dansað þá. Einstaklega ódýrt kvöld það, frír leigubíll í bæinn og fengum far með Hjálmari heim. Alveg geggjað:haha:.

Áramótin hafa sjaldan verið eins skemmtileg eins og núna. Allavega ekki eins fjölbreytt held ég. Byrjaði þannig að Atli sótti mig og svo Unu um 1 leytið og við fórum í smá teiti heim til hans. Þar voru Sævar og nokkrir vinir hans, Svavar bróðir, Kári, Palli og fleiri. Fórum svo í partý til Svavars vin Atla og þar var fullt hús af fólki. Þaðan héldum við þrjú svo áfram í partý til vinkonu Unu sem býr niðrí bæ. Við röltum síðan niður í bæ og Sigga vinkona Unu með okkur. Þá var klukkan reyndar hálf 5 en jæja við beint inn á Hressó og vorum þar í góða stund. Hittum nokkrar vinkonur Unu og mikið dansað eins og venjulega. Ég og Una skelltum okkur svo á Sólon og vorum þar með Svavari bróður og co til lokunnar. Síðan var fengið sér smá að borða og svo í taxa heim, og komum heim um hálf 9-9.

Erum við að tala um stemningu hjá okkur í gær eða:lol:... mynd á Hrapp sem var tekin af okkur: ég og Una að tapa okkur á gólfinu... fer held ég ekki á milli mála hvernig stemningin var. Annars voru tvær vinkonur Unu líka með myndavél... spennandi að sjá hvernig þær myndir eru.

Annars bara: Gleðileg jól, gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla/þau gömlu. Þakka þeim kærlega sem sendu mér jólakort, ég er alltaf jafn léleg að senda svoleiðis og í ár voru engin kort send, kemur stundum fyrir, þannig að fyrirgefið stelpur, þið sem senduð mér;). Endilega kvitta fyrir sig og hafið það bara sem best:haha:.


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 11:41:47 / Iris

Snjór snjór snjór og aftur snjór

Ekkert smá sátt við þennan snjó úti:haha:. Hef bara ekki séð svona í mörg ár... Maður ætti kannski ekki að fagna um of, þetta verður farið áður en maður veit af:|. En mikið var ég fegin að ég hafi ekki farið á djammið í gær. Alveg nóg að bíða í hálftíma eftir leigubíl, hvað þá að þurfa bíða í marga klukkutíma...

Spurning um að skella sér bara norður við tækifæri. Fjallið opnaði á föstudaginn og eins og stóð á vefnum þeirra í morgun: "Opið í dag frá 10-16 ... og skíðafæri er mjög gott." Bara fínar fréttir fyrir mig;). Einhver sem vill koma með?:lol:

Samt örugglega flestir í prófum og svona. Sem betur fer þarf ég ekki að hafa áhyggjur af svoleiðis núna. Gangi ykkur vel, þið sem eruð að fara í próf;).


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 20:06:56 / Iris

Mánudagur til mæðu !

 

Dagurinn minn í dag í hnotskurn...

  • Hef sjaldan verið eins þreytt og í dag, alveg að leka niður. Við Birna vorum aðeins of lengi í heimsókn hjá Ingibjörgu í gær;).
  • Vaknaði hálf 8 eftir aðeins nokkra tíma svefn og skutlaði Tedda á spítalann. Fór um 10 þegar honum var rúllað í aðgerðina.
  • Kom heim, fann köttinn og hundinn og við mamma og pabbi fórum með þær upp á dýró. Hundurinn frekar lasin og greindur með lifrarbólgu:!:.
  • Ég vil kenna Euroshopper fæðinu um það. Mamma og pabbi keyptu það í síðustu viku og gáfu henni það, greyið búin að vera slöpp síðan:whut:. Euroshopper er auðvitað bara eitur... Annars hef ég ekki hugmynd um hvað lifrarbólga er lengi að koma fram.
  • Sem betur fer fann læknirinn ekki fleiri æxli hjá þeim... *7-9-13*. Vonum það besta.
  • Náði í Tedda á spítalann. Hjá honum fannst ekki neitt þannig að hnéð verður bara bilað áfram. Vorum svo bara heima í rólegheitum, höfðum hvorugt orku í að fara neitt út.
  • Hitti Kötlu frænku á MSN. Hún hjálpaði mér heilmikið í að finna háskóla á netinu. Lét mig fá allskonar leitarsíður og upplýsingar og hjálpaði mér að leita að náminu mínu. Við miðuðum við háskóla í Bretlandi þar sem hún er sjálf að læra þar.
  • Þvílíkt og annað eins ferli, alls kyns umsóknir, inntökupróf, enskukunnáttupróf á íslandi fyrir inntöku, skila ferilskrá, hafa samband alþjóðaskrifstofu, mögulegir styrkir og lán, misjafnt milli skóla hvort það er eitt eða tvö ár til mastersgráðu, mismunandi umsóknarfrestur, mikið af skólum, dreifðir um landið og mikil leit af þeim rétta...
  • Veit allavega að ég var alveg að tala við réttu manneskjuna:D.

Teddi fékk bandaríkjamann í heimsókn um daginn, Chris. Þvílíkt hress og skemmtilegur gaur. Teddi fór m.a. með hann gullna hringinn, út að sigla, sýndi honum borgina, fór með hann í ísklifur á Sólheimajökli og þá fékk hann að sjá bæði jökulinn og svo norðurljósin. Á laugardagskvöldinu fékk strákurinn síðan að kynnast íslensku skemmtanalífi8). Við Helga byrjuðum reyndar fyrst í útskrift hjá Evu en ég fór síðan í afmæli til bróður Tedda og konunnar hans og hitti strákana þar. Við fórum svo þrjú í bæinn. Chris var stoppaður í dyrunum á Hressó þar sem þar væri "dresscode" (var í strigaskóm). Held það sé frekar merkilegra að stoppa 16 ára stelpurnar sem dyraverðirnir virðast vera að hleypa inn þessa dagana.

Toppurinn á ferðinni hans var svo líklega á þriðjudeginum en þá varð hann tvítugur:haha:. Við Svavar tíndum saman nokkuð af fólki og komum honum á óvart. Fórum fyrst með hann út að borða á Ruby Tuesday, síðan í keilu í Keiluhöllinni og svo fóru strákarnir á pöbb í bænum. Svavar plataði hann til að koma með til Eyja á næstu þjóðhátíð:haha:. Er einhver sem á textann sem einhver samdi á ensku um þjóðhátíð? Nokkuð góð lýsing á því sem hátíðin gengur út á;).

Nokkur ný albúm komin inn... Mallorca ferðin í sumar (er þetta ekki tíminn til að óska sér að maður væri í sólarlöndum8)?), afmæliskvöldið mitt þegar við fórum nokkur á Magna og Dilönu og síðan djammið með Chris um þar síðustu helgi.

Allar myndirnar mínar (frá 2006) má finna finna hér.


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 22:13:35 / Iris

djamm, bolti og bíó...

Jæja margt búið að gerast síðan síðast og auðvitað man maður ekki helminginn... *rifja upp* ... Þarsíðustu helgi fórum við Teddi í matarboð til Steina vinar hans. Ég hitti svo Hólmógellurnar mínar seinna um kvöldið og skellti mér með þeim á tjúttið. Alltaf gaman að hitta þær, þurfum að gera þetta oftar stelpur;).

Núna síðustu helgi fór ég í afmæli til Dedda vinar míns, mikið stuð og mikið gaman. Þar voru Stuðmenn að spila í öllu sínu veldi. Hitti Sigrúnu mína og Höllu og ætluðum við að tjútta saman. Það stóð nú e-ð illa á hjá þeim þannig að við ætlum að eiga þetta inni bara. En þá skellti mín sér ein í bæinn og hitti auðvitað fullt af fólki eins og venjulega, Svavar brósa og co, Silju og co, Bjarka, Birnu, Hjálmar og co og marga fleiri. Hressó er að sjálfsögðu staðurinn, gaman að því:D.

Ég lenti í því að fara á handboltaleik um daginn, já "lenti í því" vegna þess að ekki er ég mikil áhugamanneskja um handbolta... Ég held ég hafi farið einu sinni áður á leik, minnir að ég og Ásdís höfum farið að horfa á Svavar kallinn hennar spila fyrir ÍR ... Jæja ég sat þarna saklaus á fremsta bekk að senda sms og fékk svona skyndilega boltann í hausinn:!:. Það var auðvitað mikið hlegið að mér (allur salurinn heyrðist mér), greinilega eina manneskjan sem ekki var að fylgjast með leiknum:|. Hann fór nú reyndar ekki beint í andlitið en svona straukst eftir hausnum öðrum megin. Man það næst að vera ekki að senda sms næst þegar ég á von á einhverju í hausinn...

Ég fór á Mýrina um daginn. Kom allt of seint á myndina, ekki mér að kenna þó:lol:, og eyddi restinni af myndinni að reyna að fatta hver var hvað, leið eiginlega eins og ég væri að horfa á stöðumælaverðina (þeir fatta sem horfðu á Fóstbræður). Fannst myndin samt mjög góð og ætla að reyna að fara aftur og fá allt í samhengi...

Næsta helgi er nokkuð plönuð, fer með gamla bekknum mínum út að borða á föstudaginn og svo er ég boðin í tvær veislur á laugardeginum... nóg að gera:haha:.


» 14 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 16:47:54 / Iris

Spennandi ??

Spennó segiru Birna mín, já og nei held ég bara... stundum ætla ég að skrifa e-ð en man þá man ég ekkert og svo þegar andinn hellist yfir mig þá hef ég ekki tíma:o. Svona er þetta bara...

Það er bara allt sama að frétta held ég, nema orðin árinu eldri. Get ekki sagt að ég finni nokkuð fyrir því, ekki mjög drastískt að hoppa frá 23 í 24, nema hvað það styttist óðum í þrítugsaldurinn.

Nú man ég t.d. ekki nokkuð hvað ég er búin að vera að bralla, nema jú fór á frægu tónleikana, svo sem ekki mikið hægt að segja af þeim, allt of troðið. En samt gaman að sjá þetta og tók helling af myndum. Tók líka eitt video þar sem Dilana söng lagið "when i wake up" en söng svo á íslensku "Farðí rassgat" í viðlaginu. Ég leyfði litlu frændsystkinunum að horfa sem auðvitað fengu lagið á heilann. Þau sungu bara endurtekið "farðí rassgat, farðí rassgat":lol:. Frekar aulalegt af mér en ég fattaði það að sjálfsögðu ekki fyrr en eftir á.

Ætlaði að láta endurmeta launin mín hjá borginni, búin að vinna þar í liðveislunni í rúm 5 ár... En nei, svarið var bara: "því miður, þú ert ekki með neinn starfsaldur" "þarft að vera í meira en 33 % stöðugildi svo það teljist sem starfsaldur". Já einmitt, ég er semsagt búin að vinna hjá borginni í rúm 5 ár en samt ekki:!:. Svona er alltaf níðst á manni... Svo fattaði ég það að ég hef bara verið í 31-32% stöðugildi á sambýlinu og skammtímavistuninni svo ég er greinilega ekki með neinn starfsaldur yfir höfuð?

Well, læt þetta duga í bili, hendi inn myndum við tækifæri...


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 23:10:58 / Iris

prumpuslím og tunnupælingar...

Það er svo gaman í vinnunni minni:haha:. Elska þetta. Ég er reyndar oft frekar óheppin með meiru. Lenti til dæmis í því í dag að fá prumpuslím í hárið:!:. Svona appelsínugult slím sem lak niður hausinn á mér. Algerlega mér að kenna að sjálfsögðu. Frekar ósmekklegt en samt mjög fyndið. Mikið búið að gera grín að mér í dag...

Fór út að labba með Líf í gær. Ekki svo sem frásögufærandi, eeen ég fór að pæla, er búið að fjarlægja allar ruslafötur hjá göngustígum og leikvöllum? Það voru alltaf svona grænar tunnur hengdar á ljósastaura (sem var reyndar alltaf verið að opna og eyðileggja:S). Fer frekar með hana á göngustíginn niður við sjó en þar eru  tunnur með ágætu millibili. En það er ekki skrítið að það sé allt í rusli í bænum ef það eru hvergi ruslatunnur sjáanlegar:(. Ég þurfti að labba með kúk í poka í um korter 20 mínútur og endaði svo á að henda pokanum í tunnuna heima:$. Mætti ekki einni einustu ruslafötu.

En nóg um það. Ég er að fara á ball á laugardaginn. Ætla að tjútta smá og að sjálfsögðu fá að sjá og hlusta á Dilönu á sviði. Ég var ekki búin að hafa neitt litlar áhyggjur yfir þessu. Alveg viss um að missa af miðunum. Við Birna vorum mættar á mánudaginn kl 13 og biðum í lítilli röð miðað við það sem ég var búin að búast við, rétt kannski um 50 manns á undan, ef það voru svo margir.

Hlakka til að sjá ykkur stelpur á laugardaginn:haha:.


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 18:16:00 / Iris

Síðan síðast...

Búin að hafa það alveg ágætt þetta fyrsta skólalausa haust, frekar skrítið en mjög þægilegt samt;). Pabba finnst ég miklu uppteknari núna en þegar ég var í skólanum, hef auðvitað nægan tíma núna fyrir skemmtun og hef þess vegna getað slappað af við ýmislegt t.d. farið í bíó, á kaffihús, út að borða og þar fram eftir götunum, eitthvað sem var erfiðara meðan maður var í skóla; þurfti að læra og átti takmarkaðan pening:P. Skellti mér líka í Bláa lónið á föstudaginn, mjög næs. Var reyndar frekar slöpp í síðustu viku en lét það ekki á mig fá, alveg að fá nóg af þessu lélega kerfi í mér, fæ hálsbólgu, hita og kvef (flensan) einu sinni í mánuði. Hef lengi spáð í að láta taka hálskirtlana en legg eiginlega ekki í það þar sem Teddi var nær dauða en lífi eftir sína aðgerð í fyrra.

Talvan mín er loksins komin úr viðgerð. Hún er bara eins og ný, búið að skipta um viftu, þrífa hana hátt og lágt og skipta um músartappann. Ekkert smá ánægð með hana:haha:.

Það styttist í afmælið mitt, bara 13 dagar. Þekki allavega 5 aðra sem eiga líka afmæli í október (besti mánuðurinn;)). Þar af eru 2 stórafmæli.

Held ég láti þetta duga í bili, svo er bara að krossa fingur og vona að snjórinn láti sjá sig8). Búin að bíða allt of lengi... Vonandi get ég skellt mér í brettaferð milli jóla og nýjárs eins og í fyrra, norður t.d., eru ekki leikskólar annars lokaðir þá?:$


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 19:21:54 / Iris

Grænt te, hákarl og ís :)

Nokkrar í vinnunni minni eru duglegar að drekka grænt te. Ég var e-ð að forvitnast um þetta hjá þeim um daginn og þær gáfu mér bréf til að smakka (e-ð te frá Sollu í Grænum kosti minnir mig). Ég fékk að vita að helst ætti ég að blanda bréfið út í sódavatn með bragði (plús eða sítrónu t.d.). Ég gerði það, fann ekki hálfs lítra flösku til að blanda í svo ég náði mér bara í lítinn íþróttabrúsa, hellti sítrónukristal í hann og sturtaði duftinu ofan í. Ég var inni í herbergi í tölvunni og nennti ekki að ná mér í e-ð fram í eldhús til að hræra svo ég setti bara tappann á brúsan og rúllaði honum varlega á hlið og aftur til baka... þá byrjaði bara að freiða á fullu framhjá tappanum og jókst bara svo ég setti brúsann á gólfið... Haldiði að tappinn hafi ekki skotist af, testrókurinn stóð upp í loft og allt var útatað í grænu tei:!: Loftið, hurðin, veggurinn, rúmið, ég og gólfið8|. Þvílíkur sprengikraftur í einu litlu tebréfi. Veit ekki hvernig þetta hefði endað ef ég hefði hrist þetta meira eða ef ég hefði blandað í hálfslíters flösku og lokað henni... ætli flaskan hefði ekki bara sprungið;). Þær semsagt gleymdu að segja mér að teið freiðir mjög mikið...

Fór að sigla með Tedda og Steina um daginn. Hvalaskoðunarskip kallaði á bátinn okkar í talstöðina og bað um að við skyldum láta vita ef við sæjum hákarl, áttu víst einhverjir hákarlar að vera þarna í nágrenni við Reykjavík. Það liðu ekki nema nokkrar mínútur þangað til við sáum einn, bara með dótið upp úr (ugginn?) og í rólegheitar dóli rétt undir yfirborðinu8|. Var eins og klippt út úr bíómynd, bara flott:haha:. Vorum ekki nema um 2 metra frá honum þegar við vorum sem næst honum. Mér fannst hann frekar stór, ætli hann hafi ekki verið um 8 metrar eða svo...

Smakkaði óvenjulegan ís um daginn. Fór í ísbúð Vesturbæjar (held ég hún heiti) og keypti mér ís. Hann er víst af einhverri gamalli gerð, allavega spurði stelpan hvort ég vildi gamlan eða nýjan ís. Soldið spes, vanilluís nema aðeins brúnni en venjulegur, smá krapi og minnti kannski e-ð á Brynjuís. En allavega mjög góður.

Eyjamyndirnar mínar eru komnar inn, tæplega 140 stk. Spurning hvort ég taki saman videoklippin og setji saman... eitt ansi gott... sé til. En myndirnar eru semsé allar komnar og tengill á það neðst á síðunni, í 2006 albúminu.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 22:35:16 / Iris

Myndir

Jæja þá fer að líða að því að maður hendi þessum myndum inn, ekki lítið búið að reka á eftir manni;). Allt í góðu reyndar, auðvitað bara gaman að skoða skemmtilegar myndir.

Setti inn myndir sem teknar voru um síðustu helgi undir heitinu *Old Hólmó gells*. Þá eru komin alls 4 í sumar, önnur albúm eru:

  • Sumardjamm (hittumst nokkrar heima hjá Ásdísi)
  • Útskriftarpartý (hittingur hjá mér eftir veisluna mína)
  • Jeppaferð (með Tedda og fleirum úr bjsv.)

Er að bíða eftir því að fá tölvuna hans Tedda. Ég uppgötvaði mér til mikillar undrunar og gleði að myndirnar frá Eyjum eru í hans tölvu en ekki biluðu minni. Hún er í láni en ég vona að ég fái hana í kvöld...

Er að vinna næstu helgi en förum í afmælis- og kveðjupartý til Silju... Hún er því miður (fyrir mig) að flytja á Bifröst (gaman fyrir hana samt) og ætlar að halda smá veislu fyrir vini og vandamenn. Mikið er ég glöð að vera ekki að fara í skóla í vetur:haha:, fyrsta skipti síðan ég var 5 ára... spennandi...

Hverjir eru annars að lesa þetta hjá mér? endilega kommentið, forvitin að vita hver kíkir hérna við...


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 17:50:34 / Iris

Jæja...

Alveg einstaklega löt í blogginu þessa dagana...Talvan mín er líka biluð þannig að ég hef lítið sem ekkert komist í tölvu síðustu 2 vikur...

Fór til Eyja með Birnu um versló en vorum líka með Svavari og co og Atla og co. Einstaklega skemmtilegt í alla staði. Var búin að skrifa stóra færslu um Eyjar stuttu eftir versló sem fór til fjandans þannig að hér verður bara stuttur annáll. Fórum frá Þorlákshöfn aðfaranótt föstudags. Hef aldrei lent í eins vondum sjó... Eins og við vorum öll sammála um þá var þetta gaman í svona korter en restin var hræðileg. Ég held að flestir í bátnum hafi allavega gubbað einu sinni. Ég slapp sem betur fer. Einn vinur Svavars skilaði 8 sinnum... en nóg um það. Við Birna fengum gistingu í húsi sem var alveg frábært. Uppábúið rúm, sæng, koddi og tilheyrandi beið okkar á hverju kvöldi, auk þess sem okkur var boðið í kvöldmat og hressingu á nóttunni í hvíta tjaldinu þeirra. Alveg magnað. Við tjölduðum reyndar tjaldinu okkar á föstudeginum hjá strákunum en tókum það niður á laugardeginum þar sem við sáum fram á að við myndum ekkert nota það. Hitti alveg fullt af fólki sem ég þekki og skemmti mér rosa vel. Tók slatta af myndum sem verða að bíða betri tíma vegna þess að þær eru allar í tölvunni minni sem ég get ekki kveikt á og þarf að fara með hana í viðgerð sem fyrst...

Ég fór svo til Tedda í Galtalæk á sunnudeginum (eins og í fyrra). Náði fyrst í Líf í pössun í Grímsnesið og vorum komnar um hálf 6. Fengum kvöldmat í boði Ársæls og skellti mér smá í gæslu um kvöldið, en Teddi var gæslustjóri. Rólegt og gott kvöld og fékk ég enn og aftur gistingu í húsi, reyndar með svefnpokann minn í þetta skiptið.

Tók smá tjútt með old hólmó gells á föstudaginn. Rosa gaman að hitta þær aftur og hendi inn myndum af því sem fyrst... Tók svo stælinn á þetta eftir djammið og var skuttlað heim í limmu;).


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 14:37:14 / Iris

Líf varðhundur :)

Var að komast að því að Líf er sko alvöru varðhundur:D. Hún er nú yfirleitt stygg við ókunnuga og geltir undantekningarlaust á póstinn... en þetta sem kom fyrir í morgun hefði mig aldrei grunað að gæti gerst... Það kom nebbla ókunnugur maður inn meðan ég var sofandi8|. Ég vaknaði bara við að Líf gelti og gelti og heyrði líka karlmannsrödd sem var að reyna að róa hana niður. Hélt fyrst að þetta væri Teddi en þegar ég heyrði að maðurinn var farinn að fikta í takkaborðinu á kerfinu þá leist mér nú ekki á þetta og rauk fram til að athuga málið. Líf var alveg snælduvitlaus og hætti ekki að gelta fyrr en hún sá að ég var vöknuð og komin fram. Þá sá ég að þetta var bara Securitas maður að kíkja á kerfið hjá okkur en hvernig átti Líf svo sem að vita það;). Aumingja gæinn hélt að það væri enginn heima, ég vaknaði víst ekki við dyrabjölluna þegar hann hringdi. En Líf passar greinilega sína:haha:.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 01:20:38 / Iris

Nýjar fréttir

Jæja þá er maður kominn heim frá útlandinu. Reyndar vika síðan, lentum á miðvikudeginum. Ég vann síðan 4 daga og þá aftur kominn í frí.

Ferðin var alveg frábær, bara slappað af og haft gaman. Mikið sofið út, sólað sig, farið út að borða, rölt um og skoðað eyjuna. Vorum á Alcudia ströndinni sem er á norðurhluta eyjunnar. Ég var þarna með fjölskyldunni þegar ég var 8 að verða 9 ára, mundi lítið sem ekkert eftir bænum en gaman að labba þarna um og rifja það upp.

Sólin var nú ekki mikill vinur minn. Ég var komin með hellings kláðabólur á 3. degi sem reyndist svo vera sólarexem. Ég fór í apótek og fékk sólarvörn 40 og eitthvað krem til að bera á þetta. Tókum líka 2 daga frí úr sólinni til að leyfa húðinni að jafna sig. Tókum bílaleigubíl og keyrðum um stóran hluta eyjunnar. Skoðuðum meðal annars marga litla spænska bæi. Gaman að sjá staði sem ekki eru eins smitaðir af ferðaþjónustu eins og Alcudia þar sem annað hvert hús er hótel, veitingastaður eða glingurbúð. Keyrðum um miðbæ Palma, Palma ströndina og bæi og staði þar í kring. Seinni daginn fórum við meðal annars í hella á austurströndinni nálægt bænum Arta, skoðuðum borgarvirkin og minjarnar í gamla bænum í Alcudia og margt fleira.

Teddi fékk skyndilegan fótboltaáhuga meðan við vorum þarna úti. HM var auðvitað í gangi og ekkert nema Bretar, Þjóðverjar og norðurlandabúar þarna úti. Leikirnir voru sýndir í beinni á hótelinu á kvöldin á breiðtjaldi niðri við barinn. Við sáum nokkra leiki þar, skemmtileg alþjóðleg stemning þó svo ég hafi ekkert fylgst með leikjunum.

Annars var alveg frábært veður, um 33-35° yfir daginn, eiginlega of heitt... höfðum það yfirleitt best bara í skugganum. Hótelið var mjög fínt, aðeins nokkrar mínútur í ströndina og smábátahöfnina. Það var reyndar einn stór galli, rúmin voru svo léleg að við sváfum ekki dúr alla ferðina, voru grjóthörð og gormarnir stóðu upp í bakið á okkur, ekki spes. En fyrir utan það þá var allt í góðu... Ég er komin í tveggja vikna sumarfrí núna sem er mjög næs. Ætla að slappa af og vona að það verði kannski smá sól á meðan ég er í fríi.

Skellti mér í blak í blíðunni nauthólsvíkinni í dag. Fórum nokkur saman, ég, Svavar, Atli og 4 stelpur sem hann þekkir. Svo voru þarna líka tvær litlar stelpur sem fengu að vera með þannig að við vorum 9 sem var bara nokkuð gott... Nema þegar fréttamaður NFS byrjaði að mynda okkur... þá stukku tveir leikmenn í burtu og við hin urðum voða stressuð svona í beinni. Klúðruðum frægðinni algjörlega...

Ég er semsagt á leiðinni til Eyja um versló... Það kom nú bara fyrir tilviljun. Galtalækjarmótið átti ekki að vera haldið í ár en eitthvað breyttist og björgunarsveitin beðin um að vera með gæslu. Teddi verður gæslustjóri í ár, tekur við af pabba sem verður með restinni af familíunni að sóla sig á Krít. Ég ákvað því að skella mér til Eyja með henni Birnu minni og svo kemur önnur x-hólmógell líklega með okkur, bara stuð.

Búin að setja inn ný myndaalbúm inn í 2006 flokkinn... smá djamm heima hjá mér á útskriftardaginn og djamm hjá Ásdísi fyrstu helgina í júní.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 23:53:52 / Iris

Hitt og þetta síðasta mánuðinn...

Er kominn tími á nýtt blogg eða:S. Er búin að hafa nóg að gera síðasta mánuðinn. Er náttla að vinna á fullu í tveimur til þremur vinnum (fer eftir því hvernig á það er litið). Ég skellti mér norður með Birnu um sjómannahelgina. Ætlaði að plata fólk í útilegu en það voru víst allir uppteknir þannig að við drifum okkur bara norður. Hittum fólkið hennar og tókum að sjálfsögðu smá tjútt;).

Það er búið að vera frekar mikið að gera í undirbúningi fyrir útskriftina. Ákvað á síðustu stundu að halda veislu fyrir stórfjölskylduna. Ég keypti mér hvítan kjól og skó við ásamt ýmsu smálegu fyrir veisluna eins og borðskreytingar, dúk, kerti og servíettur. Pantaði snittur og marsípantertur og bökuðum kökur og brauðrétti.

Ég fór í allsherjar yfirhalningu í vikunni, plokkun og litun, neglur, klippingu og litun og svo splæsti ég í fótsnyrtingu (þýðir ekki annað en að vera með sætar tær). Toppurinn var síðan á föstudaginn en Teddi hafði komið mér á óvart með því að panta nudd og dekur á Nordica spa. Það var ekkert smá næs, hélt að ég ætlaði bara að sofna á bekknum hjá gæjanum...

Laugardagurinn var síðan tekinn snemma. Mætti til Silju í förðun kl 7:30 og síðan í greiðslu til hárgreiðslukonu upp úr 8. Athöfnin var frá 10 til 12 og voru 565 kandídatar útskrifaðir. Við Teddi fórum út að borða í hádeginu og veislan byrjaði kl 3. Var með um 40 manns í mat, með okkur hér heima. Heppnaðist frábærlega og ekki skemmdi fyrir hvað það var gott veður. Vorum með opið út á pall, smá útipartý8). Fékk nokkra vini heim um kvöldið og kíktum svo í bæinn.

Það styttist óðum í ferðina, förum út á miðvikudaginn. Kem næst með fréttir þaðan:haha:.


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 14:03:24 / Iris

Alveg búin í skólanum :)

Allt fínt að frétta héðan:D. Ég er loksins búin í skólanum...

Ég hélt kynningu á lokaritgerðinni föstudaginn 12. maí. Það var fullt af fólki í salnum og rosa stuð þegar þetta var búið. Við fengum rósir frá Þroskaþjálfafélaginu og buðum svo okkur, kennurum og leiðbeinendum upp á snittur og kampavín og vorum með slide show frá bekkjardjömmum í gegnum árin. Um kvöldið fórum við Teddi út að borða en síðan var haldið í sal sem bekkurinn leigði og djammað þar.

Verkefnin tvö sem ég kláraði núna síðast voru þau að ég hélt starfsmannafræðslu fyrir starfsfólk vettvangsstaðarins og kláraði ferilmöppuna mína en hún varð alls 80 bls...

Ég byrjaði að vinna á fimmtudaginn síðasta, ekkert smá gaman. Mér finnst verst að ég fæ ekki þroskaþjálfalaun fyrr en eftir útskrift:whut:. Ég þarf að skila prófskírteininu til Heilbrigðisráðuneytisins til að fá starfsleyfi og fyrr fáum við ekki rétt laun...

Það er auðvitað engin hvíld hjá mér þótt skólinn sé búinn. Þarf að læra inn á nýjan vinnustað og skipuleggja starfið mitt þar. Ég sé 28. júní alveg í hyllingum en þá förum við Teddi í tvær vikur til sólarlanda. Svo er bæði leikskólinn og skammtímavistunin lokuð í tvær vikur í júlí þannig að ég fæ alveg 4 vikur í sumarfrí, ekki slæmt:haha:.


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Loksins...
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1733 dögum
Þjóðhátíð í Eyjum